Stúdentaráð Háskóla Íslands og Félag stúdenta
við Háskólann á Akureyri halda sameiginlegt málþing undir
yfirskriftinni: “Samkeppnishæfni opinberu háskólanna á
Íslandi”.
Málþingið verður haldið þriðjudaginn 28. mars
samtímis í HÍ og HA með notkun fjarfundarbúnaðar.
Tilgangur málþingsins er að koma af stað upplýstri umræðu um
sameiginleg málefni Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri. Þessir
háskólar eiga það sameiginlegt að vera opinberir skólar sem
innheimta ekki skólagjöld. Skólarnir standa frammi fyrir því að
samkeppnisstaða þeirra við erlenda og innlenda skóla fer versnandi
vegna ónógra fjárframlaga. Skólarnir þurfa því að verja stöðu sína
í stað þess að sækja fram!
Dagskrá: Þingið hefst klukkan 12:20 og verður haldið:
- í Reykjavík í húsi Endurmenntunar HÍ, Dunhaga 7
- á Akureyri í stofu L201 í húsnæði HA á Sólborg
v/Norðurslóð.
Flutt verða þrjú erindi, að loknu hverju erindi verða gefnar 5
mínútur til spurninga og í lok fundar verður opnað aftur fyrir
spurningar til fyrirlesaranna.
- Kl. 12:20 „Fjármögnun háskólanáms á Íslandi” - Ingjaldur
Hannibalsson, prófessor við HÍ
- Kl. 12:35 „Hvað er málið með alla þessa háskóla? Um þróun og
stöðu háskóla á Íslandi” - Kjartan Ólafsson, sérfræðingur við
Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri
- Kl. 13:00 Samkeppnisstaða íslenskra háskóla - Margrét S.
Björnsdóttir,
- Kl. 13:15 Umræður
hape="_x0000_s1026">
Þetta er áhugavert þing og hvet ég alla sem hafa
áhuga á þessu að mæta....